Helstu áhættuþættir ristilkrabbameins

Helstu áhættuþættir ristil- og endaþarmskrabbameins, hvað getum við gert til að draga úr áhættunni? Ristil- og endaþarmskrabbamein er meðal algengustu krabbameina í heiminum.

Helstu áhættuþættir ristilkrabbameins

Ristil- og endaþarmskrabbamein er meðal algengustu krabbameina í heiminum. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) greindust um 1,9 milljónir nýrra tilfella á heimsvísu árið 2022 og yfir 900.000 einstaklingar létust af völdum sjúkdómsins. Áhættan eykst með hækkandi aldri og flest tilfelli greinast hjá fólki yfir fimmtugu. Þó hefur á síðustu árum orðið vart við aukna tíðni hjá yngra fólki í ýmsum löndum (World Health Organization [WHO], 2026). Nýverið birti Krabbameinsfélagið grein um rannsókn um aukið nýgengi á ristilkrabbameini hjá yngri hópum.

Mikilvægt er að hafa í huga að áhættuþáttur þýðir ekki að einstaklingur muni fá krabbamein. Sumir einstaklingar hafa marga áhættuþætti án þess að veikjast en aðrir greinast án augljósra áhættuþátta. Þekking á áhættuþáttunum getur þó hjálpað okkur að taka ákvarðanir sem draga úr áhættu og jafnframt undirstrikað mikilvægi skimunar og snemmbærrar greiningar (American Cancer Society [ACS], n.d.).

Aldur, erfðir og fjölskyldusaga

Aldur er einn mikilvægasti óbreytanlegi áhættuþátturinn. Áhættan eykst verulega eftir fimmtugt, þó ristil- og endaþarmskrabbamein geti einnig komið fram hjá yngra fólki. WHO bendir jafnframt á að tíðni sjúkdómsins meðal yngri fullorðinna hafi farið vaxandi í nokkrum löndum.

Fjölskyldusaga skiptir einnig máli. Einstaklingar sem eiga foreldri, systkini eða barn sem hefur greinst með ristil- eða endaþarmskrabbamein eru í aukinni áhættu. Samkvæmt bandarísku krabbameinsstofnuninni (National Cancer Institute, NCI) getur saga um sjúkdóminn hjá fyrsta stigs ættingja um það bil tvöfaldað áhættuna. Áhættan getur verið sérstaklega mikil ef náinn ættingi greinist ungur.

Ákveðin arfgeng heilkenni geta aukið áhættuna enn frekar, þar á meðal Lynch-heilkenni og ættgeng kirtilsepaheilkenni (familial adenomatous polyposis, FAP). Fólk með sterka fjölskyldusögu getur því þurft einstaklingsbundið eftirlit og í sumum tilvikum erfðaráðgjöf.

Separ í ristli og bólgusjúkdómar í þörmum

Flest ristilkrabbamein þróast yfir langan tíma og geta átt upptök sín í góðkynja sepum í slímhúð ristilsins. Sérstaklega skipta svokallaðir kirtilsepar máli þar sem sumir þeirra geta með tímanum þróast yfir í krabbamein. Saga um áhættusama sepa eða fyrra ristil- og endaþarmskrabbamein eykur því líkur á sjúkdómnum síðar (National Cancer Institute, n.d.).

Langvinnir bólgusjúkdómar í þörmum, einkum sáraristilbólga (ulcerative colitis) og Crohn-sjúkdómur sem hefur áhrif á ristil, geta einnig aukið áhættu. Áhættan tengist meðal annars því hversu lengi bólgusjúkdómurinn hefur staðið og hversu stór hluti ristilsins er undirlagður. Þess vegna getur fólk með langvinna bólgusjúkdóma þurft reglulegra eftirlit með ristilspeglunum.

Unnar kjötvörur og mikið af rauðu kjöti

Mataræði er meðal þeirra þátta sem við getum haft áhrif á. Sterk vísindaleg gögn tengja neyslu unninna kjötvara við aukna hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini. Þar má nefna beikon, skinku, salami, pylsur og annað kjöt sem hefur verið saltað, reykt, gerjað eða unnið á annan hátt til að auka geymsluþol eða breyta bragði. Mikil neysla rauðs kjöts, svo sem nautakjöts, svínakjöts og lambakjöts, tengist einnig aukinni áhættu (World Cancer Research Fund [WCRF], n.d.).

Ýmsar skýringar hafa verið lagðar fram á þessi tengsl. Hem-járn í rauðu kjöti getur meðal annars stuðlað að myndun N-nítrósóefnasambanda. Við vinnslu kjöts geta einnig verið til staðar nítrít og nítröt sem geta stuðlað að myndun slíkra efna. Þá geta myndast heterósýklísk amín og fjölhringa arómatísk kolvetni þegar kjöt er eldað við mjög háan hita eða grillað þannig að það brennur (WCRF, n.d.).

WCRF ráðleggur þeim sem borða rautt kjöt að halda neyslunni við um 350–500 grömm af elduðu kjöti á viku og neyta mjög lítils, ef nokkurs, af unnum kjötvörum.

Lítil trefjaneysla

Trefjar eru mikilvægur hluti heilbrigðs mataræðis og gögn benda til þess að trefjaríkt mataræði og heilkorn geti dregið úr hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini. Trefjar auka rúmmál hægða, stuðla að reglulegum hægðum og hafa áhrif á örveruflóru þarmanna. Gerjun trefja af þarmabakteríum myndar einnig stuttar fitusýrur, meðal annars bútýrat, sem gegna mikilvægu hlutverki fyrir frumur ristilsins.

WCRF mælir með mataræði þar sem heilkorn, grænmeti, ávextir og belgjurtir skipa stóran sess. Slíkt mataræði veitir ekki aðeins trefjar heldur fjölbreytt vítamín, steinefni og önnur lífvirk efni (WCRF, 2025). 

Ofþyngd og offita

Ofþyngd og offita tengjast aukinni hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini. Tengslin virðast vera sérstaklega sterk hjá körlum, þó aukin áhætta sjáist hjá báðum kynjum. Mögulegar skýringar tengjast meðal annars langvinnri lágstigsbólgu, breytingum á hormónastarfsemi og efnaskiptum insúlíns (American Cancer Society, n.d.).

Að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd yfir ævina er því mikilvægur þáttur í krabbameinsforvörnum. Það er ekki aðeins einstök fæðutegund sem skiptir máli heldur heildarmynstur mataræðis, hreyfingar og orkujafnvægis.

Hreyfingarleysi

Regluleg hreyfing tengist minni hættu á krabbameini í ristli. Hún hjálpar einnig til við að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd og getur haft jákvæð áhrif á efnaskipti, insúlínnæmi og bólguferla líkamans. WCRF telur sannfærandi vísindaleg gögn liggja fyrir um verndandi áhrif líkamlegrar hreyfingar gegn ristilkrabbameini.

Ekki þarf endilega að stunda mjög erfiða líkamsrækt. Rösk ganga, hjólreiðar, sund, garðvinna og önnur regluleg hreyfing geta verið góð leið til að auka daglega virkni. Almennt er miðað við að fullorðnir nái að minnsta kosti um 150 mínútum af miðlungsákafri hreyfingu á viku eða samsvarandi magni af ákafari hreyfingu.

Áfengi og reykingar

Áfengisneysla eykur hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini. WCRF telur sterk gögn styðja þessi tengsl og frá sjónarhóli krabbameinsvarna er öruggast að forðast áfengi.

Reykingar tengjast einnig aukinni áhættu. Fólk sem hefur reykt í langan tíma er líklegra til að þróa með sér ristil- og endaþarmskrabbamein og sepa í ristli en þeir sem reykja ekki. Að hætta reykingum er því ekki aðeins mikilvægt til að draga úr hættu á lungnakrabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum heldur einnig hluti af forvörnum gegn fleiri tegundum krabbameina (American Cancer Society, n.d.).

Sykursýki af tegund 2

Sykursýki af tegund 2 tengist aukinni hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini. Hluti tengslanna kann að skýrast af sameiginlegum áhættuþáttum, svo sem ofþyngd og hreyfingarleysi, en rannsóknir benda til þess að aukin áhætta sé enn til staðar þegar tekið hefur verið tillit til þessara þátta. Insúlínviðnám og langvarandi hækkun insúlíns í blóði kunna að gegna hlutverki (American Cancer Society, n.d.).

Forvarnir, margt er hægt að gera

Þótt ekki sé hægt að breyta aldri eða erfðum getum við haft áhrif á marga aðra áhættuþætti. Heildarmynstur heilbrigðs lífsstíls virðist skipta miklu máli. Nýleg samantekt WCRF styður að samspil heilbrigðrar líkamsþyngdar, reglulegrar hreyfingar, trefjaríks mataræðis með ríkulegu magni af ávöxtum og grænmeti, lítillar neyslu unninna kjötvara og áfengis og þess að reykja ekki tengist minni hættu á ristil- og endaþarmskrabbameini.

Skimun er jafnframt afar mikilvæg. Með skimun er hægt að finna forstig sjúkdómsins, svo sem ákveðna sepa, áður en þeir þróast yfir í krabbamein. Einnig aukast líkur á árangursríkri meðferð verulega þegar krabbamein greinist snemma. WHO bendir á að lækkun dánartíðni í ýmsum hátekjulöndum megi meðal annars rekja til þess að sjúkdómurinn greinist fyrr.

Einkenni eins og blóð í hægðum, viðvarandi breytingar á hægðavenjum, kviðverkir, óútskýrt þyngdartap, þreyta eða járnskortur ætti að taka alvarlega og leita læknis vegna þeirra. Mikilvægt er þó að muna að ristil- og endaþarmskrabbamein getur verið einkennalaust á fyrstu stigum. Skimun og reglulegt eftirlit getur því skipt sköpum.

Lokaorð

Ristil- og endaþarmskrabbamein verður ekki alltaf fyrirbyggt, en margir þekktir áhættuþættir tengjast lífsstíl og því er hægt að hafa áhrif á þá. Trefjaríkt og fjölbreytt mataræði, hófleg neysla rauðs kjöts og lítil sem engin neysla unninna kjötvara, regluleg hreyfing, heilbrigð líkamsþyngd, reykleysi og lítil eða engin áfengisneysla eru meðal þeirra þátta sem geta stuðlað að minni áhættu.

Samhliða heilbrigðum lífsstíl er mikilvægt að taka þátt í skimun þegar hún stendur til boða og ræða við lækni um einstaklingsbundið eftirlit ef sterk fjölskyldusaga, bólgusjúkdómur í þörmum eða aðrir sérstakir áhættuþættir eru til staðar.

Heimildir

American Cancer Society. (n.d.). Colorectal cancer risk factors. American Cancer Society. https://www.cancer.org/cancer/types/colon-rectal-cancer/causes-risks-prevention/risk-factors.html

American Cancer Society. (n.d.). American Cancer Society guideline for diet and physical activity for cancer prevention. American Cancer Society. https://www.cancer.org/cancer/risk-prevention/diet-physical-activity/acs-guidelines-nutrition-physical-activity-cancer-prevention.html

National Cancer Institute. (n.d.). Colorectal cancer prevention (PDQ®)–Patient version. National Institutes of Health. https://www.cancer.gov/types/colorectal/patient/colorectal-prevention-pdq

National Cancer Institute. (n.d.). Colorectal cancer prevention (PDQ®)–Health professional version. National Institutes of Health. https://www.cancer.gov/types/colorectal/hp/colorectal-prevention-pdq

World Cancer Research Fund. (2025). Dietary and lifestyle patterns for cancer prevention: Evidence and recommendations from CUP Global. World Cancer Research Fund International.

World Cancer Research Fund. (n.d.). Be physically active: Recommendation evidence. https://www.wcrf.org/research-policy/evidence-for-our-recommendations/be-physically-active/

World Cancer Research Fund. (n.d.). Limit consumption of red and processed meat: Recommendation evidence. https://www.wcrf.org/research-policy/evidence-for-our-recommendations/limit-red-processed-meat/

World Health Organization. (2026). Colorectal cancer. https://www.who.int/news-room/fact-sheets/detail/colorectal-cancer

 

Íslensk fæðubótarefni úr hreinum íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum.

Back to blog