Húðin okkar er stærsta og eitt mikilvægasta líffærið

Húðin okkar er stærsta og eitt mikilvægasta líffærið

Húðin okkar,  verndari líkamans frá barnsaldri til elliáranna

Húðin er stærsta líffæri mannslíkamans og eitt það fullkomnasta sem sinnir ótal hlutverkum, hún ver okkur gegn bakteríum, hitabreytingum og mengun, stjórnar hitastigi og hjálpar okkur að skynja heiminn í kringum okkur. Þrátt fyrir þetta gleymist hún oft í daglegu lífi, við hugsum um hana þegar hún verður þurr, sólbrunnin eða hrukkótt, en sjaldan sem líffæri sem þarf stöðuga umönnun alla ævi.

Helsta hlutverk húðarinnar er að: 
  • Verja okkur gegn utanaðkomandi áreiti
  • Framleiða D vítamín fyrir líkamann
  • Hitastilla líkamann
  • Losa okkur við úrgangsefni 
  • Hindra vökvatap
  • Að ver eitt aðal skynfærið okkar 

Húðin skiptist í þrjú lög, þ.e. ysta lag sem kallast húðþekja, leðurhúð sem er undir húðþekjunni og svo undirhúð.  Frumur í húðinni eru í stöðugri endurnýjun og geymir undirhúðin fituna í líkamanum og djúpt í húðþekjunni eru litafrumurnar. 

Þegar við eldumst minnkar grunnframleiðsla líkamans, leðurhúðin er teygjanleg og þegar við eldumst missir húðin teygjanleikann. Því verður nauðsynlegt til að stuðla að jafnvægi, gæta heilbrigðis og að bæta gæða næringarefnum við búskapinn. Við getum nært húðina að innan með því að neyta vel samsettrar fæðu og gæta þess að fá öll bestu næringarefnin, s.s. vítamín, steinefni, sölt og góðgerla. Mataræði sem nærir og styrkir húðina er t.d. grænmeti, trefjar, ávextir og olíur. Grænmeti og ávextir eru trefjarík og það styður við framleiðslu á okkar náttúrulegu góðgerlum. Gæta þarf þess vel að fá nægan vökva, best er að drekka ríkulega af vatni á hverjum degi, oft á dag. (Menntamálastofnun 2022).

Við verðum að virða húðina og hirða hana reglulega, til dæmis er mjög gott ráð að þurrbursta húðina reglulega. Þá styrkjum við húðina, örvum hana til að starfa og hún smyr sig sjálf. Vítamín sem eru talin gagnast húðinni sérstaklega eru A-vítamín, C-vítamín, E-vítamín, og snefilefnin selen, sink, kopar og joð. (Menntamálastofnun 2022).

Húðin á barnsaldri

Ef við skoðum húð og hár á börnum sjáum við hve glansandi og heilbrigð þau eru. Líkaminn starfar í fullkomnu jafnvægi og næringarbúskapurinn er góður að öllu jöfnu.

Húð barna er þynnri og viðkvæmari en húð fullorðinna. Hún hefur ekki þróað fullkomna varnarlínu gegn bakteríum og efnum úr umhverfinu, og framleiðsla fitu (sebum) er minni.
Þess vegna er mikilvægt að:

  • Nota mildar, óilmandi hreinsivörur
  • Halda raka í húðinni með nærandi rakakremum
  • Forðast ofnotkun sápu og freyðandi baðvöru
  • Vernda húðina gegn sól með sólarvörn (SPF 30+) 

(Stamatas, G. N., et al. (2011). (American Academy of Dermatology (AAD)

Unglingsár og hormónabreytingar

Á unglingsárum eykst framleiðsla fitu í húðinni vegna hormóna, sérstaklega testósteróns. Þetta veldur oft unglingabólum (acne vulgaris).
Hér skipta skynsamleg húðrútína og jafnvægi miklu:

  • Hreinsa húðina tvisvar á dag.
  • Forðast ofhýðingu eða sterkar vörur sem geta aukið ertingu.
  • Nota snyrtivörur sem merktar eru „non-comedogenic“ (stíflar ekki svitaholur). 

(Zaenglein, A. L., et al. (2016)

Fullorðinsárin

Á fullorðinsárum helst húðin í jafnvægi ef hún fær nægan raka, næringu og vernd gegn sólarljósi. En áhrif umhverfis, streitu og lífsstíls sjást smám saman:

  • Sólin veldur ljósöldrun (photoaging), hrukkum, litabreytingum og missi teygjanleika.
  • Skortur á svefni og næringu hefur áhrif á endurnýjun húðarfrumna.
  • Mengun getur aukið oxunarálag og bólgusvörun.

(Baumann, L. (2007)

Góð ráð:

  • Nota daglega sólarvörn (SPF 30+).
  • Halda raka í húð með ceramíðum og hýalúrónsýru.
  • Neyta andoxunarríks matar, s.s. berja og grænmetis.

Húðin á efri árum

Með aldrinum minnkar framleiðsla kollagens, elastíns og húðfitu. Húðin verður þynnri, þurrari og viðkvæmari fyrir sárum og sýkingum. (Farage,M.A.,et al.(2013)

Að viðhalda heilsu húðarinnar á efri árum er því lykilatriði fyrir almenna líðan:

  • Nærandi rakakrem daglega, helst strax eftir sturtu.
  • Mjúk, rakagefandi hreinsun.
  • Sólarvörn áfram – jafnvel á skýjuðum dögum.
  • Heilsusamlegt mataræði og nægur vökvi.

Húðin fylgir okkur frá fyrsta andardrætti til síðasta dags og endurspeglar heilsu okkar, lífsstíl og umönnun. Hún á skilið sömu athygli og hjarta, heili eða meltingarkerfi, því heilbrigð húð er ekki aðeins falleg heldur líka lífsnauðsynleg.

Góð uppbyggjandi undirstöðuefni húðar og hárs

Rannsóknir hafa sýnt fram á að kísill er nauðsynlegur fyrir eðlilega myndun beina og annarra fruma og stuðlar að jafnvægi milli kalks og magnesíums í líkamanum. Þá örvar hann einnig myndun kollagens sem er ein aðal uppistaðan í myndun bandvefs og er að finna í beinum, húð og hári svo fátt eitt sé nefnt. Meðal inntaka Vesturlandabúa af kísil úr fæðu er langt undir viðmiðunarmörkum en geta líkamans til að taka kísil úr fæðunni minnkar með aldrinum og eru konur á Vesturlöndum í sérstökum áhættuhóp hvað þetta varðar.

Kollagen er nauðsynlegt og er eitt helsta byggingarefni líkamans, allt að 30% af próteini líkamans gerð úr kollageni. Kollagen er lífsnauðsynlegt prótein sem finnst í bandvefjum líkamans, þar sem það tengir saman vefi og líffæri líkamans. Þegar við eldumst hægist á framleiðslu kollagena sem leiðir til þess að við fáum slakari húð, hár los og aumari liði.

Það er hægt að bæta á búskap kollagena og viðhalda góðu jafnvægi með því að bæta því við fæðuna. 

Smáþörungar (astaxanthín) er talið eitt öflugasta andoxunarefnið og styrkir húðina og rakastig hennar. Astaxanthín stykir ónæmiskerfið og er gott fyrir almennt heilbrigði, ásamt því að minnka bjúg og bólgur og eykur liðleika og þrek. Astaxanthín hefur staðfesta virkni samkvæmt rannsóknum.

Öll þessi næringarefni eru sótt í hafið við Ísland

Eylíf býður upp á vörur sem innihalda þessi næringarefni s.s. Smoother SKIN & HAIR inniheldur kollagen, astaxanthin, GeoSilica kísil og nokkrar tegundir af vítamínum og snefilefnum sem eru nauðsynleg fyrir húðina. Happier GUTS og Stronger LIVER innihalda kítósan sem næra slímhúðina okkar og er góð næring fyrir gerlaflóruna okkar. Active JOINTS og Stronger BONES innihalda ríkulega af kalkþörungum og GeoSilica kísil. 

Kalkþörungar hafa verið taldir hluti af heilbrigðum lífsstíl í Austur-Asíu í mörg hundruð ár en í þeim má finna steinefni, Omega-3 fitusýrur, trefjar og andoxunarefni.

Faraldsfræðilegar rannsóknir sýna að lægri tíðni er á langvinnum sjúkdómum í Austur-Asíu, eins og krabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum sem rakið er til heilbrigðra lífshátta og matarræðis sem inniheldur m.a. kalkþörunga. Til upplýsingar eru faraldsfræðilegar rannsóknir þær sem rannsaka útbreiðslu og orsök sjúkdóma hjá hópum manna þar sem megin viðfangsefni rannsóknanna er samband áreitis (e. exposure) og útkomu (e. outcome).

Heimildir: 

  • Menntamálastofnun, 2022. https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/mannslikaminn/66/ (skoðað 16.3.2022)
  • Stamatas, G. N., et al. (2011). Infant skin physiology and development during the first years of life. British Journal of Dermatology.
  • American Academy of Dermatology (AAD): “Baby skin care basics.”
  • Zaenglein, A. L., et al. (2016). Guidelines of care for the management of acne vulgaris. Journal of the American Academy of Dermatology.
  • NHS UK: “Acne – causes, treatment, and myths.”
  • Baumann, L. (2007). Skin ageing and its treatment. Journal of Pathology.
  • American Dermatological Association: “How to prevent premature skin aging.”
  • Farage, M. A., et al. (2013). Intrinsic and extrinsic factors in skin ageing: a review. International Journal of Cosmetic Science.
  • WHO: “Healthy ageing and the importance of skin health.”

Íslensk fæðubótarefni úr hreinum íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum.

Back to blog