Sjónin er eitt mikilvægasta skynfæri okkar og gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi, sjálfstæði og lífsgæðum. Við hugsum þó oft lítið um augnheilsuna fyrr en sjónin fer að breytast. Líkt og önnur líffæri líkamans þurfa augun reglulega umönnun og nægilegt framboð næringarefna til að starfa sem best. Heilbrigt mataræði, regluleg hreyfing, góð stjórn á blóðsykri og blóðþrýstingi, reykleysi og reglulegar augnskoðanir geta öll stuðlað að því að varðveita sjónina fram eftir aldri (National Eye Institute [NEI], 2025).
Augun eru viðkvæm fyrir öldrun og oxunarálagi
Sjónhimnan, sem liggur aftast í auganu, er mjög efnaskiptavirkur vefur. Þar umbreytist ljós í taugaboð sem heilinn túlkar sem sjón. Í miðju sjónhimnunnar er gulbletturinn, eða macula, sem gerir okkur kleift að sjá skýrt, lesa, greina andlit og sjá fín smáatriði.
Vegna mikillar súrefnisnotkunar, stöðugrar útsetningar fyrir ljósi og mikils magns fjölómettaðra fitusýra er sjónhimnan viðkvæm fyrir oxunarálagi. Með aldrinum getur einnig aukist hætta á sjúkdómum eins og dreri, gláku og aldurstengdri hrörnun í augnbotnum (age-related macular degeneration, AMD). Mataræði eitt og sér getur ekki komið í veg fyrir alla augnsjúkdóma, en rannsóknir benda til þess að heildarmataræði og ákveðin næringarefni geti átt þátt í að viðhalda heilbrigðri sjón.
Lútín og zeaxantín, mikilvæg litarefni augans
Tvö næringarefni hafa fengið sérstaklega mikla athygli í rannsóknum á augnheilsu: lútín og zeaxantín. Þau tilheyra flokki karótenóíða og safnast upp í gulbletti augans þar sem þau mynda svokallað macular pigment. Talið er að þau hjálpi meðal annars til við að sía hluta af orkumiklu bláu ljósi og virki sem andoxunarefni.
Góðar náttúrulegar uppsprettur lútíns og zeaxantíns eru meðal annars:
- spínat, grænkál og annað dökkgrænt laufgrænmeti
- spergilkál og rósakál
- eggjarauður
- maís og gular paprikur
- baunir og ýmis önnur litrík grænmeti.
National Eye Institute bendir sérstaklega á dökkgrænt laufgrænmeti sem hluta af augnvænu mataræði. Rannsóknir AREDS2 (Age-Related Eye Disease Study 2) sýndu jafnframt að lútín og zeaxantín geta haft sérstakt gildi hjá ákveðnum einstaklingum með aldurstengda hrörnun í augnbotnum, sérstaklega þegar neysla þessara efna úr fæðu er lítil (Chew et al., 2022).
Omega-3 fitusýrur og fiskur
Sjónhimnan inniheldur mikið magn af omega-3 fitusýrunni DHA (docosahexaenoic acid), sem er mikilvægur byggingarhluti frumuhimna. Feitur fiskur, svo sem lax, silungur, sardínur, makríll og síld, er ríkur af omega-3 fitusýrunum DHA og EPA.

Þess vegna er fiskur almennt talinn góður hluti af mataræði sem styður augnheilsu. NEI mælir með því að fiskur ríkur af omega-3 fitusýrum sé hluti af hollu mataræði fyrir augun (NEI, 2025).
Mikilvægt er þó að gera greinarmun á neyslu fisks sem hluta af heilsusamlegu mataræði og töku omega-3 bætiefna. Í AREDS2-rannsókninni (Age-Related Eye Disease Study 2) reyndist viðbót DHA og EPA í bætiefnaformi ekki draga frekar úr framgangi á aldurstengdri hrörnun í augnbotnum (AMD) þegar þeim var bætt við AREDS-formúluna. Því er ekki rétt að fullyrða að omega-3 hylki ein og sér komi í veg fyrir aldurstengda augnsjúkdóma (AREDS2 Research Group, 2013).
C- og E-vítamín, sink og önnur andoxunarefni
Augun þurfa einnig fjölbreytt úrval vítamína og steinefna. C-vítamín og E-vítamín taka þátt í andoxunarvörnum líkamans, en sink hefur fjölmörg líffræðileg hlutverk og finnst meðal annars í miklu magni í augnvef.
Góðar fæðuuppsprettur þessara næringarefna eru til dæmis sítrusávextir, ber, paprika, hnetur, fræ, heilkorn, fiskur, kjöt, egg og belgjurtir. Best er að nálgast þessi næringarefni með fjölbreyttu mataræði þar sem grænmeti, ávextir, fiskur, heilkorn, hnetur og góðar jurtaolíur eru áberandi.
Sérstök AREDS2-bætiefnablanda inniheldur háa skammta af C- og E-vítamíni, sinki, kopar, lútíni og zeaxantíni. Slíkir skammtar eru hins vegar ekki almenn ráðlegging fyrir alla sem vilja hugsa vel um augun. Rannsóknirnar sýna ávinning fyrst og fremst hjá fólki sem þegar hefur miðlungs- eða langt gengna aldurstengda hrörnun í augnbotnum. Sérstök AREDS2-bætiefnablanda kemur hvorki í veg fyrir að aldurstengd hrörnun í augnbotnum (AMD) myndist hjá heilbrigðu fólki né hefur verið sýnt fram á að blandan komi í veg fyrir ský á augasteini (NEI, 2026).
Miðjarðarhafsmataræði virðist sérstaklega vænlegt
Þegar litið er á heildarmataræði fremur en einstök næringarefni kemur Miðjarðarhafsmataræði vel út. Það einkennist af mikilli neyslu grænmetis, ávaxta, belgjurta, hneta, fræja, heilkorns og ólífuolíu ásamt reglulegri fiskneyslu. Rauðu og unnu kjöti, mikið unnum matvælum og sykurríkum vörum er haldið í hófi.
Kerfisbundin yfirferð og safngreining frá 2025 sýndi tengsl milli góðrar fylgni við Miðjarðarhafsmataræði og minni hættu á framgangi aldurstengdrar hrörnunar í augnbotnum. Í framsýnum hóprannsóknum var góð fylgni við mataræðið tengd um 23% minni áhættu á framgangi á aldurstengdri hrörnun í augnbotnum (AMD). Hér er þó um að ræða að mestu leyti athugunarrannsóknir og því er ekki hægt að fullyrða að mataræðið eitt og sér valdi þessari áhættuminnkun (Pereira et al., 2025). 
Þessi niðurstaða fellur vel að þeirri almennu hugmynd að það sem er gott fyrir hjarta- og æðakerfið sé einnig gjarnan gott fyrir augun. Heilbrigðar æðar eru mikilvægar fyrir eðlilegt blóðflæði til sjónhimnunnar.
Blóðsykur og blóðþrýstingur skipta augun miklu máli
Augnheilsa snýst ekki aðeins um vítamín. Langvarandi hár blóðsykur getur skaðað smáar æðar sjónhimnunnar og valdið sjónhimnukvilla vegna sykursýki. Hár blóðþrýstingur og óhagstæð blóðfita geta einnig aukið hættu á augn- og æðasjúkdómum.
Þess vegna styður mataræði sem hjálpar til við að viðhalda heilbrigðum blóðsykri, blóðþrýstingi og líkamsþyngd óbeint einnig við augnheilsu. Regluleg hreyfing gegnir sama hlutverki. National Eye Institute (NEI) bendir á að hreyfing geti dregið úr hættu á heilsufarsvandamálum eins og sykursýki, háþrýstingi og háu kólesteróli sem geta síðan haft áhrif á sjónina (NEI, 2025).
Aðrir þættir sem vernda sjónina
Mataræði er aðeins einn hluti af góðri augnheilsu. Einnig er mikilvægt að:
-
reykja ekki, þar sem reykingar auka meðal annars hættu á ský á augasteini og aldurstengdri hrörnun í augnbotnum
- nota sólgleraugu með góðri UV-vörn í sterku sólarljósi
- hreyfa sig reglulega og halda blóðþrýstingi og blóðsykri í góðu jafnvægi
- nota viðeigandi hlífðargleraugu við vinnu og íþróttir þar sem hætta er á augnskaða
- hvíla augun reglulega við mikla skjánotkun, blikka meðvitað og forðast að sitja samfellt lengi við skjá
-
fara reglulega í augnskoðun, sérstaklega með hækkandi aldri eða ef fjölskyldusaga er um augnsjúkdóma.
Margir augnsjúkdómar geta þróast án greinilegra einkenna á fyrstu stigum. Víkkun augasteina við ítarlega augnskoðun getur því greint sjúkdóma áður en viðkomandi verður var við breytingar á sjón (NEI, 2026).
Næring fyrir augun, hugsum um heildarmyndina
Engin ein fæðutegund eða eitt vítamín getur tryggt góða sjón ævilangt. Sterkustu ráðin fyrir almenna augnheilsu eru fremur að borða fjölbreytt og næringarríkt fæði dag eftir dag.
Góður “matardiskur“ fyrir augnheilsu, gæti þannig innihaldið mikið af dökkgrænu og litríku grænmeti, berjum og öðrum ávöxtum, heilkornum og belgjurtum, hnetum og fræjum, góðri jurtaolíu og fiski reglulega. Þetta mataræði veitir ekki aðeins lútín, zeaxantín, omega-3 fitusýrur, C- og E-vítamín og sink heldur styður það einnig við hjarta- og æðakerfið og efnaskiptaheilsu.
Augnheilsan endurspeglar þannig að mörgu leyti almennt heilbrigði líkamans. Með góðri næringu, reglulegri hreyfingu, reykleysi, vernd gegn sterku sólarljósi og reglulegu eftirliti með augunum má leggja mikilvægan grunn að því að varðveita sjón og lífsgæði eins lengi og mögulegt er.

Heimildir
Age-Related Eye Disease Study 2 (AREDS2) Research Group. (2013). Lutein + zeaxanthin and omega-3 fatty acids for age-related macular degeneration: The Age-Related Eye Disease Study 2 (AREDS2) randomized clinical trial. JAMA, 309(19), 2005–2015. https://doi.org/10.1001/jama.2013.4997
Chew, E. Y., Clemons, T. E., Agrón, E., Domalpally, A., Keenan, T. D. L., Vitale, S., Weber, C., Smith, D. C., & Christen, W. (2022). Long-term outcomes of adding lutein/zeaxanthin and ω-3 fatty acids to the AREDS supplements on age-related macular degeneration progression: AREDS2 report 28. JAMA Ophthalmology, 140(7), 692–698. https://doi.org/10.1001/jamaophthalmol.2022.1640
National Eye Institute. (2025). Keep your eyes healthy. National Institutes of Health.
National Eye Institute. (2026). Age-Related Eye Disease Studies (AREDS/AREDS2). National Institutes of Health.
National Eye Institute. (2026). Get a dilated eye exam. National Institutes of Health.
Pereira, A. M., et al. (2025). Mediterranean diet on development and progression of age-related macular degeneration: Systematic review and meta-analysis of observational studies. Nutrients, 17(6), 1037. https://doi.org/10.3390/nu17061037