Eylíf tók þátt í Gullkistunni á Ísafirði í september 2025

Eylíf tók þátt í Gullkistunni á Ísafirði í september 2025
Gullkistan á Ísafirði, sýning framleiðanda á Vestfjörðum tókst frábærlega og var okkur hjá Eylíf boðið að taka þátt í ár. Kalkþörungafélagið á Bíldudal bauð okkur að taka þátt, en við notum kalkþörunginn í allar vörur Eylífar með góðum árangri. Þar voru bæði fyrirtæki sem eru í nýsköpun og fyrirtæki sem nýta hafið og náttúruna til framleiðslu og verðmætasköpunar. Hér má lesa um sýninguna:  "Gullkistan Vestfirðir er metnaðarfull og fjölbreytt sýning sem dregur fram það besta sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða í atvinnulífi og menningu. Markmiðið er að sýna Vestfirði sem líflegt og framsækið svæði – svæði sem byggir á sterkum rótum og blómstrar með hugviti í átt að sjálfbærri og farsælli framtíð.Á Gullkistunni Vestfirðir segjum við sögur af svæði sem þorir og getur – þar sem fjölbreytt mannlíf, tækninýjungar, frumkvæði og samheldni móta samfélag í stöðugri þróun." Margt var um manninn og okkur gafst tækifæri til að hitta tvo forseta á sýningunni og tvo ráðherra.

Íslensk fæðubótarefni úr hreinum íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum.

Back to blog