VÖRULÝSING
Við þurfum sterk bein alla ævi því við stöndum og föllum með þeim. Það er alltaf nauðsynlegt að huga að beinunum því fáir sjúkdómar skerða lífsgæði eins mikið og beinþynning. Bein eru stöðugt að eyðast og myndast og til 30 – 35 ára aldur er jafnvægi náð. Eftir það fara beineyðandi frumur að hafa betur og vegna hormónabreytinga (45 – 60 ára) eykst hraði beineyðingar töluvert hjá sumum einstaklingum. Til að vinna að þessu jafnvægi alla ævi á eðlilegan hátt þarf að stuðla að kalkmyndun með góðri næringu og hæfilegri áreynslu.
Stronger Bones inniheldur uppbyggjandi næringarefni með margra ára rannsóknir að baki sem sýna fram á virkni fyrir beinauppbyggingu. Það hefur áhrif á styrkingu bandvefs og verndun beina fyrst og fremst ásamt því að húð, liðir, neglur og meltingin njóta góðs af. Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð og náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt, til að stuðla að sterkari beinum, því með því að huga að beinunum stöndum við sterkari.
Stronger Bones hefur einnig reynst vel fyrir meltinguna og hér er grein um meltinguna.
Stronger Bones frá Eylíf inniheldur níutíu tuggutöflur í glasi. Best er að tyggja þrjár á dag með mat til að styrkja bandvef og viðhalda sterkum beinum, alla ævi.
Stronger Bones
- Styrkir bandvef og verndar beinin. D-vítamín stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfssemi. Kalsíum er nauðsynlegt fyrir viðhald eðlilegra beina og tanna. Magnesíum stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og tanna. Mangan stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og myndun bandvefjar. C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi beina, brjósk, góma, tanna, húðar og æðastarfsemi. (Kalkþörungar, GeoSilica, C & D3 vítamín, Kalsíum, Magnesíum, Sink & Mangan)
- Andoxandi, eflir varnir líkamans. Sink stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Magnesíum hefur hlutverki að gegna við frumuskiptingu. D3 & C vítamín stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. C vítamín vítamín stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi. Mangan stuðlar að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum og að verja frumur fyrir oxunarálagi. (Magnesíum, Mangan, Sink, D3 & C vítamín)
- Fyrir liðina. Mangan og C vítamín stuðla að því að verja frumur fyrir oxunarálagi. C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. (Kalkþörungar, Mangan, C vítamín)
- Fyrir meltinguna og gegn brjóstsviða. Kalsíum stuðlar að eðlilegri starfsemi meltingarenzýma. (Kalkþörungar & Magnesíum)
- Stuðlar gegn þreytu og orkuleysi. Magnesíum og C vítamín stuðlar að því að draga úr þreytu og lúa. Magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi. (Kalkþörungar, Magnesíum, C vítamín & GeoSilica)
- Nærandi og rakagefandi fyrir húðina og hárið. C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega myndun húðar. Magnesíum hefur hlutverki að gegna við frumuskiptingu. Mangan stuðlar að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum og að eðlilegri myndun bandvefjar. (Kalkþörungar , Magnesíum, Mangan & GeoSilica)
- Kalkþörungarnir innihalda 74 stein- og snefilefni frá náttúrunni ss. kalsíum, mangesíum, selen, sink, fosfór, járn,joð ofl
- Góð vítamín og steinefnaviðbót (Kalkþörungar, C- & D3 vítamín, Mangan og Sink.
- Takið 3 hylki á dag, má dreifa inntöku yfir daginn
- Inniheldur engar dýraafurðir
- Geymist þar sem börn ná ekki til
- Ekki skal neyta vörunnar í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu
- Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um þe. 3 tuggutöflur á dag
- Laktósafrítt
- Án allra aukaefna
- Inniheldur 90 tuggutöflur í glasi, sem er mánaðarskammtur
- Frí heimsending innanlands ef keypt er fyrir 7.000 kr eða meira á heimasíðunni
- Framleitt undir GMP gæðastaðli á Grenivík
- Fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Fjarðarkaup, Krónunni, Melabúðinni, Nettó og í Heilsuhúsinu og hér á heimasíðunni