Skip to main content

Ragnar Alfreðsson trésmiður notar bætiefnið Stronger LIVER með frábærum árangri.

„Blóðið í mér hefur verið að hlaða upp járni og fylgjast þarf náið með gildunum því ef þau verða of há þarf að fara í aftöppun. Ég fer því í blóðprufur á þriggja mánaða fresti en eftir að ég fór að taka inn Stronger LIVER frá Eylíf hafa blóðgildin fyrir lifrina, sem voru áður ekki upp á tíu, snarbreyst til hins betra. Það er einfaldlega allt í topplagi eftir að ég fór að taka inn þetta magnaða bætiefni sem hefur breytt ótrúlega miklu fyrir mig.“

„Ragnar hefur tekið inn Stronger LIVER samviskulega upp á dag hvern í hálft annað ár. Ég mæli 100 prósent með Stronger LIVER því ég þekki það af eigin raun.“

„Ég er yfirleitt ekki ginnkeyptur fyrir töflum eða bætiefnum en fékk ábendingu um Stronger LIVER frá Eylíf. Í fyrstu var ég hikandi og hafði enga trú á áhrifum þess en eftir að ég fór að lesa mér til um bætiefnið ákvað ég að prófa. Ég var nýkominn úr blóðprufu þar sem blóðgildin fyrir lifrina voru alltof há og fannst ég ekki hafa neinu að tapa að gefa þessu séns.

Eftir þriggja mánaða skammt varð ég svo nánast orðlaus yfir því hvað gildin höfðu breyst mikið þegar ég fór næst í blóðprufu. Stronger LIVER var greinilega að svínvirka og var læknirinn minn líka hissa á betri blóðgildum í lifrinni. Ég sagði lækninum mínum að ég væri að taka inn Stronger LIVER og hann sagði það greinilega virka mjög vel, sem eru sannarlega góð meðmæli. Vitaskuld má maður ekki vera með fordóma fyrirfram og dæma það sem maður veit ekki um. Það heillaði mig líka að bætiefnið er unnið úr náttúrulegum og íslenskum hráefnum.“

„Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi hjá mér en þetta virðist haldast í hendur því blóðgildin fyrir nýrun hafa líka lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger LIVER. Ég er mjög ánægður og mun halda áfram að taka inn þetta einstaka bætiefni inn fyrir heilsu mína. Ég mæli því hiklaust með Stronger LIVER fyrir alla sem glíma við ójafnvægi í járnbúskapnum því allt hefur það lagast í mínu tilviki og ég hef þurft að fara miklu sjaldnar í aftöppun en áður. Ég hef líka hvatt félaga mína sem eru með of hátt lifrargildi að taka inn Stonger LIVER og senn kemur í ljós hvort gildin hafi ekki lækkað hjá þeim líka.“

Ragnar Þór Alfreðsson, trésmiður og framkvæmdastjóri

Viltu fá send tilboð og fréttir frá Eylíf?

Komdu á póstlistann hjá Eylíf og fáðu 15% afslátt af fyrstu pöntun. Við sendum reglulega tilboð og fréttir