VÖRULÝSING
Happier GUTS
Það er fátt jafn mikilvægt eins og að halda meltingunni og þarmaflórunni í góðu lagi því hún spilar lykilhlutverki í andlegri og líkamlegri heilsu. Þarmaflóran þróast með okkur í gegnum lífið og verður fyrir áhrifum frá umhverfi okkar. Það má því segja að hún sé eins og eitt stórt líffæri. Engin þarmaflóra er eins og önnur en hlutverk hennar er alltaf það sama; að viðhalda heilbrigði þarmanna og verja líkamann fyrir óvelkomnum örverum. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu.
Happier GUTS frá Eylíf inniheldur níutíu hylki í glasi. Best er að taka tvö hylki á dag með mat til að viðhalda heilbrigðum og hamingjusömum meltingarvegi. Við mælum með því að taka bæði hylkin á sama tíma svo að ekki gleymist að taka seinni skammtinn.
- Gott fyrir meltinguna og við meltingatruflunum. Kalsíum stuðlar að eðlilegri starfsemi meltingarenzýma. Laktas ensím bæta meltingu hjá einstaklingum sem eiga erfitt með að melta laktósa. Króm og Sink stuðla að eðlilegum efnaskiptum orkugefandi næringarefna. C vítamín og Joð stuðla að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum Sink stuðlar að eðlilegum efna
- Inniheldur 90 hylki sem er 45 daga skammtur
- Mælt er með að taka ekki D vítamín á sama tíma, gott að láta líða 1-2 klst á milli
- Inniheldur skelfisk (kítósan sem unnið er úr rækjuskel)
- Án allra aukaefna
- Frí heimsending innanlands ef keypt er fyrir 7.500 kr eða meira á heimasíðunni
- Framleitt undir GMP gæðastaðli á Grenivík
- Geymist þar sem börn ná ekki til
- Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum
- Ekki skal neyta vörunnar í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu
- Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um þe. 2 hylki á dag
Fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup, Nettó og hér á heimasíðunni