Ég hef tekið Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf sem er fyrir húð og hár í nokkra mánuði og get hugsað mér að gera það áfram. Ég hef lítið þurft að nota andlitsfarða og mér líður mjög vel af þessu. Einnig finn ég hvað hárlosið hefur minnkað hjá mér sem mér finnst mikill kostur. Mér líkar varan svo vel að ég verð lífstíðarfylgjandi Smoother SKIN & HAIR.
Auðlindir sjávar fyrir húð og hár
Sirrý Arnardóttir kynntist Smoother SKIN & HAIR vörunum frá íslenska frumkvöðlafyrirtækinu Eylíf fyrir um ári síðan og segir að húðin og hárið hafi aldrei verið í betra jafnvægi.
Sirrý þekkja flestir sem fyrrum fjölmiðlakonu og í dag starfar hún sem stjórnendaþjálfari og fyrirlesari. „Ég er með vinnuaðstöðu í Sjávarklasanum á Granda þar sem margir áhugaverðir frumkvöðlar vinna að nýsköpun og framleiða spennandi vörur úr hafinu. Það var þar sem ég kynntist bætiefnunum frá Eylíf,“ segir Sirrý Arnardóttir.
Heilbrigðið byggir á fæðunni
Sirrý segist hafa verið spennt að prófa Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf þegar hún heyrði af vörunni. „Ég hef alltaf borðað mjög hollan og næringarríkan mat enda er ég sannfærð um að það sem maður setur ofan í sig hefur gríðarleg áhrif á okkar ytra byrði. Ég rækta mitt eigið grænmeti, lifi heilbrigðu líferni og hreyfi mig reglulega og hef alltaf verið með heilbrigt hár. Heilbrigði hársins byggir ekki á því sem gerist á hárgreiðslustofunni eða þeim efnum sem sett eru í það eftirá. Heilbrigt hár byggir á fæðunni og því sem við setjum ofan í okkur.“
Hætt að þurfa krem
Eftir að Sirrý byrjaði að taka inn Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf hefur hún aldrei verið betri í húðinni og hárið er enn heilbrigðara. „Ég er alveg hætt að finna fyrir hárlosi og fólk tók strax eftir því að hárið virkaði enn heilbrigðara en áður. Húðin varð að sama skapi mun mýkri og jafnari. Eðlilega fæ ég lífslínur í kringum augun eftir því sem árunum fjölgar, en mér finnst ótrúlegt að núna þegar ég er komin á miðjan aldur, þá er ég farin að mála mig miklu minna og þarf mun minna af förðunarvörum en áður. Ég er líka eiginlega hætt að nota öll krem, fyrir utan sólarvörn. Ég þarf þau einfaldlega ekki.
Áður fann ég að húðin breyttist mikið eftir veðri, vindum og árstíðum. Stundum var húðin feit á einum stað og þurr á öðrum. Með því að taka inn Smoother SKIN & HAIR er húðin í andlitinu og líkamanum í fullkomnu jafnvægi allt árið um kring. Því þó maður borði hollt og stundi heilbrigt líferni þá búum við á eyju þar sem er myrkur stóran hluta af árinu. Hér eru tíðar veðurbreytingar, ekki bara á milli árstíða heldur á milli daga, svo er mikil sveifla í hita- og rakastigi sem umbreytist enn örar í skammdeginu. Til að sporna gegn þessum utanaðkomandi áhrifum er nauðsynlegt fyrir okkur að næra húðina innan frá, taka inn olíur og bætiefni eins og Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf.“
Dýpstu verðmætin úr hafinu
Sirrý trúir því að líkamleg og andleg framtíð þjóðarinnar sé háð því hvernig við komum fram við auðlindir hafsins. „Í hafinu er að finna okkar dýpstu verðmæti og meðal annars ýmislegt fyrir útlit og heilsu. Ég er mjög stolt af því sem Eylíf er að gera sem og aðrir frumkvöðlar í Sjávarklasanum, það er að nota auðlindir hafsins. Þetta er nákvæmlega það sem við Íslendingar eigum að gera. Við eigum leggja metnað okkar í að rækta eigið grænmeti og við eigum að einblína á og nýta auðlindir hafsins og vinna úr þeim. Fyrir utan það að líða betur líkamlega, þá líður mér líka mun betur í sálinni að nota íslensk bætiefni sem ég veit hvaðan koma.“
Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari