Ég hef notað Smoother SKIN & HAIR frá því í vor eftir að ég frétti af góðum árangri frá vinkonu minni af vörunni.
Ég var aðallega spennt að prófa vöruna vegna þess að hárið á mér hafði verið í svo lélegu ástandi fyrr á árinu eftir að hafa verið á Ketó mataræði. Velji maður Ketó mataræðið þarf að gæta þess að fá nóg af vítamínum því áhersla er lögð á það að halda sig frá ávöxtum vegna ávaxtasykursins. Ég gætti ekki nógu vel að vítamínbúskapnum mínum og fljótlega fann ég að hárið var að breytast. Hárið varð matt, stíft og töluvert meira hárlos en venjulega.
Vinkona mín hafði kynnst Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf og var ég spennt að prófa vöruna. Eftir að hafa tekið inn ráðlagðan dagskammt í nokkrar vikur fór ég að sjá og finna verulegan mun á hárinu mínu.
Hárið er orðið mjúkt og meðfærilegt og ný hár að stinga upp kollinum hér og þar um kollinn minn. Ég get því sannarlega mælt með vörunni, Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf.
Í vörunni Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf, eru mörg góð íslensk næringarefni eins og kollagen, GeoSilica kísillinn og Astaxanthin og einnig mörg önnur sem virka fyrir húðina og hárið, eins og bíótín og selen sem stuðla að viðhaldi eðlilegs hárs og C vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega myndun húðar.
Ragnhildur Sigurðardóttir, PGA golfkennari