Skip to main content

Einn af orsakavöldum bólgna í líkamanum eru ónæmisviðbrögð en þau gerast við snögga árás á líkamann eins og beinbrot, vírusar, bakteríur og svo framvegis, en bólga skamkvæmt vísindavefnum er staðbundið ósérhæft varnarsvar líkamans. Þegar þessar snöggu bólgur koma fram meðhöndlum við þær all snarlega og yfirleitt ganga þær yfir á einhverjum tíma.

Þegar bólgurnar verða krónískar (langvinnar) lýsir það sér í stöðugum bólgum en einnig liðverkjum. Vísbendingar um slíkar krónískar bólgur getur verið orkuleysi, þreyta, svefnleysi, sjúkdómar í meltingarveginum og mikil streita.

Við getum gert ýmislegt til að fyrirbyggja og draga úr krónískum bólgum og kemur næring, hreyfing og góður svefn þar sterkt inn. Með því að næra okkur með heilnæmum mat og góðum vítamínum, hreyfa okkur reglulega og gæta þess að fá nægan svefn getum við unnið okkur í haginn og fyrirbyggt bólgur í líkamanum. Mikilvægt er að skoða innihaldslýsingar á matvælum og halda sig við náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt. Heilsumarkþjálfar sem vinna með skjólstæðingum sínum geta t.d. hjálpað hverjum og einum í að finna hvaða matarræði hentar og hvaða vítamín best er að taka. 

Mikil nýsköpun hefur átt sér stað á síðustu árum með okkar hreinu íslensku náttúruafurð meðal annars úr hafinu við landið. Samstarfsnet hafa sprottið upp og hefur Sjávarklasinn til að mynda átt stóran þátt í að ýta undir nýsköpun í haftengdri starfsemi. Við í Eylíf leituðum því ekki langt yfir skammt heldur tengdumst þessu samstarfsneti og vinnum okkar vítamín úr hreinum íslenskum náttúruafurðum úr sjó og landi.

Þannig svörum við kalli hins heilbrigða lífsstíls og bjóðum upp á 100% náttúrulegar vörur sem innihalda kröftug hráefni sem eru m.a. bólguhamlandi. Það eru til dæmis Stronger BONES, Active JOINTS og Happier GUTS sem geta létt undir í að finna gott jafnvægi.

Stronger BONES inniheldur kalkþörunga og hafa rannsóknir á íslensku kalkþörungunum leitt í ljós að þeir vinna að því að styrkja beinin, eru bólguhamlandi og vinna gegn beinþynningu. Íslensku kalkþörungarnir eru svo magnaðir að þeir innihalda 74 stein- og snefilefni frá náttúrunnar hendi. Hægt er að skoða þá nánar hér. Stronger BONES er sérstaklega fyrir bein og tennur og fyrir þau sem vilja viðhalda beinþéttni og fyrirbyggja beinþynningu.

Active JOINTS inniheldur tvö íslensk gæðahráefni sem talin eru vera mjög bólguhamlandi, það eru kalkþörungar og smáþörungarnir (astaxanthín), svo er birkilauf talið vera vatnslosandi. Active JOINTS er sérstaklega fyrir liði, bandvef, bein og flýtir endurheimt.

Happier GUTS inniheldur fjögur íslensk gæðahráefni ásamt meltingarensímum sem saman bæta meltinguna, næra þarmaflóruna og hefur bólguhamlandi áhrif á líkamann. Happier GUTS er sérstaklega fyrir þau sem glíma við meltingarvandamál.

Viltu fá send tilboð og fréttir frá Eylíf?

Komdu á póstlistann hjá Eylíf og fáðu 15% afslátt af fyrstu pöntun. Við sendum reglulega tilboð og fréttir