Við getum verið sammála um að skilgreining á meltingarstarfssemi sé sú að þegar það sem við innbyrðum skilar næringu í kroppinn og við losum okkur við það sem umfram er án erfiðleika. Að það sem fari inn, fari út án næringarefna.
Samt er það svo að þessi mikilvægi ferill í likamstarfsseminni er oft á tíðum sýktur án þess að við gerum okkur endilega grein fyrir því, sem veldur vanlíðan því meltingin spilar lykilhlutverki í andlegri og líkamlegri heilsu. Meltingarvegurinn hefst í munni og endar í endaþarmi, á leiðinni koma mörg líffæri við sögu sem tengjast honum og leggja til meltingarsafa. Líffæri eins og lifur, bris og fjölmargir smærri kirtlar.
Oft eru það kvíði, áhyggjur, stress og tilfinningalegt ójafnvægi sem geta leitt til truflunar í líkamsstarfseminni og þá ýtt undir meltingarfærasjúkdóma. Ef einkenni eins og t.d. uppþemba, verkir í efra og neðra meltingarsvæði, vindgangur, harðlífi, rop, brjóstsviði, bragðsskynsbreytingar, ógleði og uppkast gætir er nauðsynlegt að staldra aðeins við, skoða tilfinningalega líðan, lífsstíl og matarræðið betur.
Lífræn fæðubótarefni eiga að vera jafn sjálfsögð og lífrænt ræktaður matur. Að bæta við mikilvægum fæðubótarefnum við búskapinn sem binda neikvæða fitu í meltingarvegi, hjálpa til við framleiðslu á meltingarensímum, stuðla að heilbrigðum meltingarvegi og hjálpa til við upptöku næringarefna úr fæðunni er lýðheilsumál sem við ættum öll að veita athygli.
Það er því ágætis byrjun að skoða matarræðið þegar einkenna verður vart, halda jafnvel matardagbók, átta sig á hvað maturinn er í raun að gera fyrir okkur, því örverurnar í meltingarveginum dafna á þeirri fæðu sem við setjum ofan í okkar.
Með því móti styðjum við líkama okkar til heilbrigðis, bjóðum sjúkdómum birginn og veljum að vinna að okkar eigin heilbrigði og velsæld til framtíðar.
Happier GUTS er okkar framlag til góðrar meltingu og þarmaflóru. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu. Happier GUTS örvar meltingarstarfsemina, nærir þarmaflóruna og er rúmmálsaukandi fyrir hægðir. Happier GUTS inniheldur fjögur íslensk gæðahráefni; náttúrulegar trefjar úr kítósan, kísilinn frá GeoSilica, kalkþörunga, og fjallagrös. Öll þessi efni hafa staðfesta verkun með rannsóknum og við styrkjum blönduna með meltingarensýmum, C-vítamíni og snefilefnunum; sinki, joði og króm.